This section requires that Javascript is enabled and the Flash Player is installed on your system.

Try again, if you are sure you meet these requirements.



Mégane Hatch: Öryggi, stíll og þægindi


Stílhreinar og glæsilegar línur gefa tilfinningu fyrir krafti og styrk. Hátt og kúpt þakið gefur bílnum einstakt útlit og veitir farþegum í aftursæti ótrúlega mikið höfuðrými.

Nýr Mégane setur ný viðmið fyrir kraft og öryggi. Mégane býr yfir einstökum aksturseiginleikum og veggripi á við ofurbíla, þökk sé háþróuðum undirvagni, breiðum hjólbörðum og rafknúnu aflstýri, ásamt hemlunaraðstoð, ABS-hemlum og rafstýrðri hemlunarjöfnun (Electronic Brake Distribution). Ökumaður og farþegar eru varðir með SRP-kerfi Renault (System for Restraint and Protection) sem samanstendur af aðlögunarhæfum loftpúðum, loftpúðum fremst í sessu (sportútfærsla) og bílbeltum í aftursæti með forstrekkjara og álagsvörn.

Þessi ótrúlegi öryggisbúnaður varð til þess að Mégane varð fyrstur bíla í sínum flokki, og einn af átta bílum frá Renault, til að fá hæstu einkunn eða fimm stjörnur í árekstrarprófum Euro NCAP*. Þú getur ekið alveg áhyggjulaus!

* Euro NCAP (European Car Assessment Programme) eru óháð og sjálfstæð samtök.

Próf fóru fram í nóvember 2002
www.euroncap.com



This section requires that Javascript is enabled and the Flash Player is installed on your system.

Try again, if you are sure you meet these requirements.