franskir "electro pop" bílar

RENAULT

„Að móta framtíðina felur í sér að byggja á 128 ára arfleifð og framþróun. Við lítum á bílinn sem sjálfbæran, snjallan og tengdan ferðamáta. Við sköpum voitures à vivre – bíla sem þú getur raunverulega lifað með – í takt við samtímann og væntingar allra.“ 

Fabrice Cambolive 
Forstjóri Renault     

skapari “voitures à vivre”
Í meira en 128 ár hefur Renault skapað framúrstefnulega bíla og sett nýsköpun í þjónustu væntinga þinna.
Hönnun, þægindi, tækni og öryggi: bílar okkar lifa og þróast með þér. Hver Renault bíll er upplifun útaf fyrir sig.        

söluhæsta franska bílamerki í heiminum*           
nr. 1      

alþjóðlegur markaður                     
+ 120 lönd

*Á árinu 2024 seldi Renault 1.577.351 ökutæki (fólksbíla og atvinnubíla). Heimild: innri gögn Renault 2025.


tækni í þágu upplifunar
openR link margmiðlunarkerfið með innbyggðu Google¹, solarbay®² skyggjanlegt panorama glerþak og Human First Program³ – hver nýjung tryggir þægindi, vernd og akstursánægju. Sýn okkar: tækni í þágu fólks.     

virk einkaleyfi*          
+ 12 000      

 

*Renault Group hefur aldrei hætt að nýskapa og býr í dag yfir 12.000 virkum einkaleyfum sem mynda hugverkaauð fyrirtækisins. Heimild: innri gögn Renault 2024.


E-Tech, í fararbroddi rafvæðingar
Sem brautryðjandi í rafbílum í Evrópu beitir Renault E-Tech-tækni sinni yfir alla bílaflóruna: 100% rafknúna bíla, sjálfhlaðandi full hybrid bíla og hyper hybrid plug-in bíla. Með Renault er rafvæðing framfarir sem eru aðgengilegar öllum.  

rafdrifnir bílar seldir í Evrópu árið 2024*            
1 af hverjum 2      

sala hybrid bíla í Evrópu árið 2024**            
nr. 2 

*Rafvæddir bílar Renault merksins námu 49% af heildarsölu þess í Evrópu árið 2024. Heimild: innri gögn Renault 2025.  

**Renault merkið var í 2. sæti á evrópska plug-in hybrid markaðnum árið 2024. Heimild: innri gögn Renault 2025.


sjálfbær skuldbinding⁴
Renault leggur sig fram á margvíslegan hátt: með því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda⁵, nota endurunnið hráefni⁶, auka endurvinnanleika⁷ og gefa efnum annað líf með sérstakri evrópskri verksmiðju sem helguð er hringrásarhagkerfinu: Refactory.

lágmarks endurvinnsluhlutfall ökutækja okkar*          
85%      

markmið fyrir árið 2030 um hlutfall endurunninna efna eða efna úr hringrásarhagkerfi⁶ í ökutækjum okkar**         
33% 

*Ökutæki eru að lágmarki 85% endurvinnanleg í samræmi við tilskipun 2005/64, svokallaða 3R-tilskipun.  

**Miðað við vegið meðaltal framleiðslumagns, þar með talið efni sem eru endurunnin í samræmi við ISO 14021 og framleiðsluafganga eða úrgang sem er endurunninn og tekinn aftur inn í framleiðsluferla á iðnaðarsvæði.            


electro pop culture
Sem franskt tákn í yfir 128 ár hefur Renault ræktað menningartengsl sín með öflugum samstarfsverkefnum, vinsælum viðburðum og metnaðarfullum menningarverkefnum.
Hvert framtak er tækifæri til að hittast og deila ástríðu okkar.    

kynntu þér nánar

¹ openR link margmiðlunarkerfið aðlagast prófílnum þínum með eiginleikum, þjónustum og öppum.  

openR link með innbyggðu Google veitir þér aðgang að persónulegum leiðum og öppum fyrir akstursupplifun sem er sniðin að þínum þörfum.

openR link inniheldur Google Maps fyrir leiðsögn í rauntíma, Google Assistant fyrir raddstýrða virkni og Google Play fyrir öpp í bílnum.

Google, Google Play, Google Maps, Waze og önnur vörumerki eru vörumerki Google LLC.

² Valbúnaður eftir útfærslum.

³ „Human First Program", sem Renault setti af stað árið 2023, kynnir almenningi allar öryggislausnir merkisins og styrkir stöðu Renault sem tæknilegs og mannlegs vörumerkis.

⁴ Renault vörumerkið er hluti af Renault Group, sem hefur sjálfbærnistefnu byggða á þremur stoðum: umhverfislegum, samfélagslegum og félagslegum þáttum.
Heimild: innri sjálfbærnigögn Renault Group.    

⁵ Renault Group hefur skuldbundið sig til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá kaupum á efnum og íhlutum og frá notkun ökutækja um 27% á tímabilinu 2019–2030, og að minnka beina og óbeina losun frá starfsstöðvum samstæðunnar um 62%.    

⁶ 33% efna úr hringrásarhagkerfinu í ökutækjum okkar fyrir árið 2030, miðað við vegið meðaltal framleiðslumagns, þar með talið efni endurunnið í samræmi við ISO 14021 og framleiðsluafganga eða úrgang sem er endurunninn og tekinn aftur inn í framleiðsluferla innan iðnaðarsvæðis.    

⁷ Ökutæki sem eru að lágmarki 85% endurvinnanleg, í samræmi við tilskipun 2005/64, svokallaða 3R-tilskipun.