njóttu alls þess sem openR link hefur upp á að bjóða
My Renault
Auktu Renault upplifunina þína. Fáðu aðgang að öllum tengdu þjónustunum og ökutækjagögnum á einfaldan hátt í gegnum snjallsímann þinn.
Google innbyggt
Með Google innbyggðu* færðu uppáhaldsöppin þín eins og Google Assistant, Google Maps og fleira í gegnum Google Play beint í bílnum, fyrir hjálplega, persónusniðna og hnökralausa akstursupplifun.
*Google, Google Play, Google Maps, Waze og önnur merki eru vörumerki í eigu Google LLC.
Snjallforritin þín
Sæktu öpp í Renault bílinn þinn í gegnum Google Play og virkjaðu gagnaáskriftina til að nota þau strax.
Láttu uppsetningarhjálpina leiðbeina þér þegar þú ræsir openR link í fyrsta sinn. Fylgdu skrefunum sem birtast á aðalskjánum til að stilla prófílinn þinn. Renault söluaðilinn aðstoðar þig frá upphafi til enda.
Við fyrstu uppsetningu verður óskað eftir að þú deilir gögnum með Google og Renault. Með því að samþykkja heimilar þú til dæmis miðlun staðsetningargagna sem nauðsynleg eru til að nota Google Maps eða til að finna bílinn úr snjallsímanum.
2. STILLINGAR
tengja aðganga
Með aðstoð söluaðila tengir þú My Renault- og Google-aðgangana við openR link kerfið og færð akstursupplifun sem er sérsniðin að þér. Fylgdu einfaldlega skrefunum sem margmiðlunarkerfið leiðbeinir um.
Keyrðu af stað með openR link og nýttu allt sem það hefur upp á að bjóða. Sérsniðin akstursupplifun með My Renault og Google aðgöngum þínum.
keyrðu af stað með Google built-in*
Njóttu uppáhalds forritanna þinna, eins og Google Assistant, Google Maps og fleira, í gegnum Google Play beint í bílnum fyrir hjálplega, persónusniðna og hnökralausa akstursupplifun.
*Google, Google Play, Google Maps, Waze and other marks are trademarks of Google LLC.
bættu akstursupplifunina
Með My Renault appinu geturðu skoðað gögn bílsins, skipulagt leiðir, ræst fjarhleðslu* og margt fleira.
*aðeins í boði fyrir Renault E-Tech rafmagns og Renault E-Tech plug-in hybrid.
ALGENGAR SPURNINGAR
GET ÉG NOTAÐ NÚVERANDI MY RENAULT EÐA GOOGLE AÐGANGA MÍNA?
Já. Fylgdu einfaldlega skrefunum í uppsetningarhjálpinni til að tengja My Renault eða Google aðganginn þegar þú notar openR link í fyrsta sinn.
GET ÉG NOTAÐ ANNAÐ NETFANG EN GMAIL TIL AÐ STOFNA GOOGLE AÐGANG?
Þegar þú stofnar Google aðgang verður sjálfkrafa til Gmail netfang. Ef þú vilt nota annað netfang geturðu tengt það við aðganginn og notað það m.a. til að endurheimta lykilorð og fá tilkynningar o.s.frv.
HVAÐ Á ÉG AÐ GERA EF ÉG NÆ EKKI AÐ SKRÁ AÐGANGA MÍNA INN Í OPENR LINK KERFIÐ?
Ef þú getur ekki tengt aðgangana við openR link kerfið, hafðu samband við Renault á Íslandi með því að fylla út formið hér.
GET ÉG UPPFÆRT AÐGANGA EFTIR AÐ PRÓFÍLLINN HEFUR VERIÐ STILLTUR?
Þú getur breytt aðgöngum hvenær sem er. Farðu í prófílinn þinn og eyddu núverandi aðgöngum. Bættu síðan inn nýjum með því að fylgja skrefunum í uppsetningarhjálpinni.
Þjónustuver okkar er opið mán frá kl 10-17, þri-fös frá kl 9-17. Það er alltaf hægt að hafa samband í gegnum vefinn og við svörum eins fljótt og auðið er.